
Að snerta hughjartað: 04 - Lífið er fullkomnlega kyrrt
- Höfundur:
- Ástvaldur Zenki Traustason
- Lesari:
- Ástvaldur Zenki Traustason
Hljóðbók
Hljóðbók: 8. maí 2020
- 10 Umsagnir
- 4.6
- Seríur
- Hluti 4 af 5
- Tungumál
- Íslenska
- Flokkur
- Óskáldað efni
- Lengd
- 29Mín
Að snerta hughjartað: 04 - Lífið er fullkomnlega kyrrt
Höfundur: Ástvaldur Zenki Traustason Lesari: Ástvaldur Zenki Traustason HljóðbókÁstvaldur Zenki talar um vetur dvöl sína ásamt konu sinni á Sonoma Mountain Zen Center í Kaliforníu árið 2000 og segir frá því hvernig lífið fer fram á slíkum stað.
Hvernig fer hjónavíxla fram og hvert er inntak athafna í Zen búddisma?
Eftirfarandi orð eru lesin upp í hjónavíxlu í Zen búddisma: Lífið er fullkomnlega kyrrt. Það er án spennu hvort sem líf ykkar er dramatískt eða lyngt. Þessi kyrrð sem stöðugt viðheldur lífi okkar er kölluð Búdda Líf. Treystið þessu lífi í hvort öðru af öllu hjarta.
Hvaða merkingu hafa þessi orð?
Þáttaröðin Að snerta hughjartað fjallar um Zen búddisma og Zen hugleiðsluiðkun og það hvernig reglubundin hugleiðsla getur hjálpað okkur til að lifa, innihaldsríku og gefandi lífi.
Ástvaldur Zenki Traustason hefur stundað Zen hugleiðslu undir handleiðslu bandaríska Zenmeistarans Jakusho Kwong Roshi síðan 1998. Árið 2018 hlaut Ástvaldur dharma transmission frá Kwong Roshi en í slíkri athöfn afhendir kennari kennsluna til nemanda síns eins og það hefur verið gert í meira en 2500 ár. Ástvaldur Zenki hefur auk þess fengið þjálfun í Japan og árið 2019 hlaut hann vígslu í tveimur af stærstu klaustrum Zen búddismans í Japan: Sojiji og Eiheiji.
Zenki, eins og hann er jafnan kallaður, er nú kennari Zen á Íslandi-Nátthaga og deilir hér með okkur lífsýn Zen búddismans sem löngum hefur verið sveipuð leyndadómsfullri dulúð.
Skoða meira af


Hlustaðu og lestu ókeypis í 3 daga
Njóttu þess að hlusta ótakmarkað á bókasafnið okkar í 3 daga, þér að kostnaðarlausu.