Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
4
Glæpasögur
Þegar skothríðinni linnir liggja fimm ungmenni og kennari þeirra í blóðflaumi í skólastofu á Djursholm, auðmannahverfi Stokkhólms. En eitt þeirra er óskaddað …
Níu mánuðum síðar kemur hin átján ára Maja Norberg fyrir rétt eftir fangelsisdvöl og einangrun, þar sem skelfingaratburðirnir í skólastofunni rifjast stöðugt upp. Sæta, ríka, klára og vinsæla stelpan er nú orðin hataðasta ungmenni Svíþjóðar. Hvað var það sem Maja gerði – og hvers vegna? Og hvað gerði hún ekki?
Kviksyndi er snjallt, spennandi og vel skrifað réttarfarsdrama sem veltir upp ágengum spurningum um sekt og ábyrgð, refsingu og friðþægingu.
Malin Persson Giolito ólst upp á Djursholm og starfaði sem lögfræðingur í Brussel. Kviksyndi hefur vakið mikla athygli og verið seld til fjölmargra landa. Bókin birtist hér í þýðingu Eyrúnar Eddu Hjörleifsdóttur og lestri Unnar Birnu Backman.
© 2024 JPV (Hljóðbók): 9789935295590
Þýðandi: Eyrún Edda Hjörleifsdóttir
Útgáfudagur
Hljóðbók: 20 mars 2024
Íslenska
Ísland