Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Viðskiptabækur
Hjáríki er um stöðu Íslands í samskiptum við önnur ríki. Ritið er samið til skilnings á þeim hugmyndum, sem um 30 ára skeið hafa mótað þá afstöðu, sem íslenskir ráðamenn hafa nú til vestur-evrópskrar stjórnar á Íslandi. Með EES-aðild kæmust erlend ríki, fyrirtæki og einstaklingar í fjölþætta áhrifastöðu um nýtingu auðlinda Íslands – með innlendum bandamönnum. Slík aðstaða yfirgnæfir alla aðra þætti málsins. Þegar íslendingar hafa hafnað EES-aðild – það getur gerst á ýmsum stigum málsins – verður ritið grundvöllur hugsunar um endurnýjaða afstöðu Íslands til samskipta við nákomin ríki. Bókin er samin af sjónarhóli manns, sem við upphaf málsins árið 1962, hafði sérstaka aðstöðu til að kynnast hug íslenskra ráðamanna í þessum efnum og hefur síðan haft að starfi að rannsaka og gera grein fyrir högum lands og stjórnarháttum.
© 2012 Lýðræðissetrið ehf. (Rafbók): 9789935907943
Útgáfudagur
Rafbók: 1 januari 2012
Íslenska
Ísland