Ofsi
- Höfundur
- Lesari
- Útgefandi
- 165 einkunn
4.4
- Sería
2 af 4
- Lengd
- 4 Klst. 45 mín.
- Tungumál
- íslenska
- Gerð
- Flokkur
Skáldsögur
Í fornsögum Einars Kárasonar, fyrst Óvinafagnaði og nú Ofsa, stíga persónur róstutíma Sturlungaaldarinnar fram í stærð sinni og smæð og segja hug sinn. Einar hefur einstakt lag á að miðla efninu þannig að auðvelt er að lifa sig inn í atburði, skilja og skynja. Ofsi er saga sem vekur í senn áhuga á skrautlegum flækjum og persónum þjóðarsögunnar og færir lesendur inn í hringiðu átakanna; sálarkeröld mannfólksins.
Sögusviðið er Ísland á þrettándu öld: Gissur Þorvaldsson snýr breyttur maður heim úr Noregsför; fús til sátta við erkióvini sína, Sturlungana, eftir áralangan ófrið. Þeir efast um heilindi hans en sannfærast þegar Gissur leggur til að sonur hans kvænist stúlku af ætt Sturlunga. Fjölmenni er boðið til brúðkaupsveislu að Flugumýri þar sem innsigla á friðinn. Ekki mæta þó allir sem boðið var. Eyjólfur ofsi glímir bæði við stórlynda eiginkonu og stríða lund: Í vígahug, með svarta hunda á hælunum, ríður hann með flokk manna að Flugumýri í veislulok; nýsaminn friður er ekki allra …
Einar Kárason hefur um árabil verið meðal vinsælustu höfunda landsins og skrifað fjölda skáldsagna en einnig smásögur, ferðasögur, ævisögur, ljóð, greinar, barnabækur, leikverk og kvikmyndahandrit. „Eyjabækur“ Einars, Þar sem djöflaeyan rís og Gulleyjan, náðu á sínum tíma óheyrðum vinsældum og urðu uppistaðan í leikriti og síðar kvikmynd. Einar hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín, m.a. tvívegis Menningarverðlaun DV og endurteknar tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Sögur Einars hafa verið gefnar út á mörgum tungumálum. Úrvalsbók með ýmsum helstu verkum hans var gefin út 2007. Í Ofsa glímir hann við efni frá Sturlungaöld, líkt og í Óvinafagnaði sem út kom 2001 og hefur notið mikilla vinsælda æ síðan, og í Skáldi (2012) og Skálmöld (2014).
Einar Kárason hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2008 fyrir Ofsa.
© 2020 Forlagið (Hljóðbók): 9789979341833
© 2020 Forlagið (Rafbók): 9789979336952
Útgáfudagur
Hljóðbók: 7 augusti 2020
Rafbók: 7 augusti 2020
Bækur svipaðar Ofsi
- Óvinafagnaður Einar Kárason
- Geirmundar saga Heljarskinns Bergsveinn Birgisson
- Bandamanna saga Óþekktur
- Brennu-Njáls saga Óþekktur
- Heimskringla I Snorri Sturluson
- Örninn og Fálkinn Valur Gunnarsson
- Brennu-Njáls saga Ókunnur
- Öxin og jörðin Ólafur Gunnarsson
- Morgunþula í stráum Thor Vilhjálmsson
- Íslenskur aðall Þórbergur Þórðarson
- Íslenskir kóngar Einar Már Guðmundsson
- Góði dátinn Svejk Jaroslav Hasek
- Bjarmalönd Valur Gunnarsson
- Stormfuglar Einar Kárason
- Passíusálmarnir Einar Kárason
- Leitin að svarta víkingnum Bergsveinn Birgisson
- Kvikasilfur Einar Kárason
- Sagan af Heljarslóðarorrustu Benedikt Gröndal
- Kynjasögur Böðvar Guðmundsson
- Stormur Einar Kárason, Einar Kársson
- Hernaðarlistin Sun Tzu
- Heimskra manna ráð Einar Kárason
- Þung ský Einar Kárason
- Tólf keisarar I - Caesar Gaius Suetonius Tranquillus
- Hundadagar Einar Már Guðmundsson
- Heimsmeistari Einar Kárason
- Passíusálmar Hallgríms Péturssonar Hallgrímur Pétursson
- Verity Colleen Hoover
- Salka-Valka Halldór Laxness
- Yesteryear Caro Claire Burke
- Allar litlu lygarnar Eva Björg Ægisdóttir
- Sjálfstætt fólk Halldór Laxness
- Tvöfalt svikalíf unnusta míns: Hin fjölskyldan hans bjó í hálftima fjarlægð Coleen Greenwood, Karen Crear
- Harry Potter og viskusteinninn J.K. Rowling
- Blóðberg Þóra Karítas Árnadóttir
- Alfa Lilja Sigurðardóttir
- Kósýkvöld með Láru Birgitta Haukdal
- Allt minnir á þig Colleen Hoover
- Lína langsokkur Astrid Lindgren
- Eiginkona læknisins Daniel Hurst
- Heim fyrir myrkur Eva Björg Ægisdóttir
- Hleyptu honum ekki inn Lisa Jewell
Veldu áskrift
1 milljón hljóð- og rafbækur
Barnvænt viðmót með Kids Mode
Hlustaðu og lestu á sama tíma
Vistaðu bækurnar fyrir ferðalögin
Unlimited
Besti valkosturinn fyrir einn notanda
3290 kr á mánuði
1 aðgangur
Ótakmörkuð hlustun
1 milljón hljóð- og rafbækur
Engin skuldbinding
Getur sagt upp hvenær sem er
Family
Fyrir þau sem vilja deila sögum með fjölskyldu og vinum.
Frá 3990 kr á mánuði
2-6 aðgangar
100 klst/mán fyrir hvern aðgang
1 milljón hljóð- og rafbækur
Engin skuldbinding
Getur sagt upp hvenær sem er
Þú + 1 fjölskyldumeðlimur
2 aðgangar3990 kr á mánuði
