Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
3.8
1 of 2
Skáldsögur
Vampírurnar eru komnar á kreik! Og hvað sem almannarómur segir eru þær ekki dauðar heldur einfaldlega fólk með heiftarlegt ofnæmi fyrir sólskini, hvítlauk og hreinu silfri. Gengilbeinan Sookie Stackhouse verður himinlifandi þegar vampíran Bill gengur inn á barinn til hennar og fyrr en varir er samband þeirra orðið afar náið. En bæjarbúar eru ekki allir jafn hrifnir og eftir að morð er framið í bænum er ekki tekið út með sældinni að eiga kærasta sem er dauður þar til sólin sest.
Sögur Charlaine Harris um hugsanalæsu gengilbeinuna Sookie og fjölbreytta mannlífsflóru smábæjarins Bon Temps í Louisiana eru bæði hugmyndaríkar og spennandi. Dauð þar til dimmir er fyrsta bókin í seríu sem kennd er við fyrrnefnda Sookie Stackhouse. Bækur þær hafa vermt efstu sæti metsölulista austan hafs og vestan og eftir þeim hafa einnig verið gerðir vinsælir sjónvarpsþættir undir heitinu True Blood.
Halla Sverrisdóttir þýddi. Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir les.
© 2022 JPV (Hljóðbók): 9789935293534
Þýðandi: Halla Sverrisdóttir
Útgáfudagur
Hljóðbók: 7 november 2022
Hundruðir þúsunda raf- og hljóðbóka
Yfir 400 titlar frá Storytel Original
Barnvænt viðmót með Kids Mode
Vistaðu bækurnar fyrir ferðalögin
Besti valkosturinn fyrir einn notanda
1 aðgangur
Ótakmörkuð hlustun
Engin skuldbinding
Getur sagt upp hvenær sem er
Fyrir þau sem vilja deila sögum með fjölskyldu og vinum.
2-6 aðgangar
100 klst/mán fyrir hvern aðgang
Engin skuldbinding
Getur sagt upp hvenær sem er
2 aðgangar
3990 kr /á mánuðiÍslenska
Ísland