2 Umsagnir
4.5
Seríur
Hluti 39 af 76
Tungumál
Íslenska
Flokkur
Barnabækur
Lengd
8Mín

Frosk-kóngurinn og Járn-Hinrik

Höfundur: Grimmsbræður Lesari: Árni Beinteinn Árnason Hljóðbók og Rafbók

Þegar ung og undurfögur kóngsdóttir missir gullkúluna sína ofan í brunninn í drungalega skóginum við hlið hallarinnar birtist froskur sem býðst til að sækja gullkúluna gegn því að hún leyfi honum að fylgja henni inn í höllina. Kóngsdóttirin samþykkir tilboðið en stingur froskinn af þegar hann hefur sótt gullkúluna. Froskurinn sættir sig ekki við þessi málalok og tekst með klækjum að koma sér inni í höllina, kóngsdótturinni til mikillar armæðu. Allt fer þó vel að lokum enda froskurinn ekki allur þar sem hann er séður.

Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.

Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.

© 2022 SAGA Egmont (Hljóðbók) ISBN: 9788728038604 © 2022 SAGA Egmont (Rafbók) ISBN: 9788728036556 Þýðandi: Theódór Árnason

Skoða meira af