Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
3.8
2 of 2
Fantasía-og-scifi
„Á ísbreiðunni ofan við þorpið læddist skuggi ...“ Fáeinum árum eftir að himnarnir opnuðust eru grimmileg morð framin á heimskautinu. Sú eina sem getur stöðvað morðingjann er máttug norn sem er fangelsuð í fjarlægu landi. Agni, listhagur pörupiltur í neðanjarðarborginni Neðra, leggur á flótta eftir að hafa verið dæmdur til dauða. Brátt flækist hann í ógnvænlega atburðarás og tekst á hendur ferðalag yfir íshelluna í von um að kaupa frelsi nornarinnar og binda enda á illvirkin – en skugginn sem læðist er ávallt skrefi á undan. Örlög stjarneyginganna Dimmbrár, Hnikars og hrafnsins Uglu, sem lesendur skildu við þegar Skuggabrúin féll, fléttast með óvæntum hætti inn í sprennuþrungna og myrka frásögn sem heldur lesendum föngnum frá upphafi til enda. Í Svikabirtu dregur Ingi Markússon lesendur enn lengra inn í hélaðan heiminn sem hann skóp með fyrstu skáldsögu sinni, Skuggabrúnni, sem vakti mikla athygli og einróma lof gagnrýnenda. Svikabirta er morðsaga á mörkum fantasíu og vísindaskáldskapar, ætluð jafnt ungmennum sem fullorðnum – saga um líf og dauða; ljós og myrkur; trú, von og hefnd. Um Skuggabrúna: „Frábær furðusaga þar sem bæði söguþráðurinn og frásagnarmátinn seiða lesandann til sín.“ - Bókmenntavefurinn „Sagan er myrk og töfrandi úr einstökum hrollköldum heimi í fjarlægri framtíð á einhvers konar jörð.“ - Morgunblaðið
© 2023 Storytel Original (Hljóðbók): 9789180672535
© 2023 Storytel Original (Rafbók): 9789180672542
Útgáfudagur
Hljóðbók: 13 november 2023
Rafbók: 13 november 2023
Íslenska
Ísland