1273 Umsagnir
4.3
Tungumál
Íslenska
Flokkur
Ævisögur
Lengd
9Klst. 47Mín

Ekki gleyma mér – minningasaga

Höfundur: Kristín Jóhannsdóttir Lesari: Elva Ósk Ólafsdóttir Hljóðbók

Hann hafði verið maðurinn í lífi mínu, með honum átti ég fallegustu og æðisgengnustu daga og nætur ævinnar á dögum undirliggjandi ótta og einræðisstjórnar Þýska alþýðulýðveldisins. Af hverju hvarf hann fyrirvaralaust úr lífi mínu? Af hverju heyrðist ekkert í honum eftir að múrinn féll? Hafði hann eitthvað að fela? Kristín Jóhannsdóttir hélt til náms austur fyrir járntjald árið 1987. Sú vist átti eftir að marka hana fyrir lífstíð. Í tvo áratugi sat hún á sér en gat svo ekki meir. Hafði maðurinn sem hún elskaði bara verið ómerkilegur Stasí-njósnari? Hvað með aðra vini sem hún eignaðist á þessum sögulegu tímum? Kristín Jóhannsdóttir er forstöðumaður Eldheima í Vestmannaeyjum. Hún var um langt árabil fréttaritari Ríkisútvarpsins í Berlín. Ekki gleyma mér er áhrifamikil minningasaga þar sem hún gerir upp heitar nætur í köldu stríði í einræðisríki á fallanda fæti. Þetta er hrífandi bók sem dregur upp áleitna mynd af veröld sem var og lætur engan ósnortinn.

© 2017 Skynjun (Hljóðbók) ISBN: 9789935181831

Skoða meira af