56 Umsagnir
3.75
Tungumál
Íslenska
Flokkur
Skáldsögur
Lengd
6Klst. 45Mín

Olga

Höfundur: Bernhard Schlink Lesari: Arnar Jónsson Hljóðbók og Rafbók

Olga er saga um viljasterka konu og óraunsæjan draumóramann. Hún berst gegn fordómum sinnar tíðar en hann ferðast um framandi slóðir í von um landvinninga. Þau eiga sér ólíkar rætur; hún er munaðarlaus og elst upp við harðan kost, hann við ríkidæmi og þjóðernisstolt. En þau elska hvort annað út yfir gröf og dauða.

Saga þeirra er þó ekki aðeins saga um ást í meinum, hún er líka samtvinnuð sögu Þýskalands fram eftir tuttugustu öldinni – sögu mikilmennsku og hástemmdra hugmynda um völd og yfirráð − og nær allt fram til okkar tíma í formi sendibréfa sem varpa ljósi á líf þeirra og dramatísk örlög. Hér í dásamlegum lestri Arnars Jónssonar.

© 2022 Mál og menning (Hljóðbók) ISBN: 9789979346340 © 2022 MM (Rafbók) ISBN: 9789979341574 Titill á frummáli: Olga Þýðandi: Elísa Björg Þorsteinsdóttir

Skoða meira af