Snerting
- Höfundur
- Lesari
- Útgefandi
- 2278 einkunn
4.4
- Lengd
- 7 Klst. 49 mín.
- Tungumál
- íslenska
- Gerð
- Flokkur
Skáldsögur
Kristófer hyggst loka veitingastað sínum í miðbæ Reykjavíkur vegna veirunnar, eftir áratuga farsælan rekstur. Sama dag berst honum óvænt vinabeiðni á Facebook – og tíminn nemur staðar. Það er líkt og áratugirnir gufi upp og hann hverfi aftur um fimmtíu ár, standi við læstar dyr um morgun í London – þegar hann uppgötvaði að þau voru farin.
Hann leggur af stað í ferð yfir þveran hnöttinn. Og um leið heldur hann á vit minninga um ástir, fornar og nýjar, leynd og eftirsjá eftir því sem hefði getað orðið, hugsjónir og veruleika, en undir kraumar spurning sem hefur leitað á hann í hálfa öld: Hvers vegna fóru þau án þess að kveðja?
Snerting eftir Ólaf Jóhann Ólafsson er áhrifamikil skáldsaga sem gerist í Reykjavík og Tókýó samtímans og London á sjöunda áratugnum. Hér sýnir hann allar sínar bestu hliðar í glæsilega skrifaðri sögu sem rígheldur lesanda allt til óvæntra endaloka.
Snerting var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og sagði dómnefndin um bókina:
„Í Snertingu eftir Ólaf Jóhann Ólafsson er dregin upp sannfærandi mynd af samfélaginu og aðstæðum fólks af ólíkum uppruna. Nútíð og fortíð er listilega fléttað saman þannig að úr verður skáldsaga sem skiptir máli.“
„Snerting er án efa ein af bestu bókum Ólafs Jóhanns. Frásögnin er meitluð og hófstillt en líka grípandi og flæðir afskaplega vel.“ ⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️ Einar Falur Ingólfsson, Morgunblaðinu
„Ofboðslega sterk saga sem hreyfði mjög mikið við mér.“ Sverrir Norland, Kiljunni
„Heillandi skáldsaga sem er óskaplega fallega skrifuð. ... Maður vill ekki hætta að lesa ... örugglega ein af bestu bókum Ólafs Jóhanns – örugglega ein af bestu skáldsögum ársins.“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni
„Heillandi bók sem snertir lesandann og hreyfir við honum.“ Brynhildur Björnsdóttir, Fréttablaðinu
„Höfundi [tekst] á snilldarlegan hátt að grípa tíðarandann en jafnframt segja stórfenglega og fallega sögu. ... Ólafur Jóhann Ólafsson hefur sent frá sér fjölda góðra skáldsagna og er Snerting meðal þeirra betri sem ég hef lesið eftir hann. Hún heldur manni alveg við lesturinn, en það gerir hana sérstaklega góða hvað hún skilur mikið eftir sig.“ ⭐️⭐️⭐️⭐️1/2 Sæunn Gísladóttir, lestrarklefinn.is
„Það er erfitt annað en að hrífast með ... Eins og vel smíðuð hæka segir Snerting stærri sögu en virðist við fyrstu sín og sleppir lesandanum ekki auðveldlega.“ Maríanna Clara Lúthersdóttir, Víðsjá
„Skrifuð af einstakri næmni og hlýju. Þetta er falleg saga. Steingerður Steinarsdóttir, Vikunni
„Undurfalleg bók og mjög áhrifamikil. Snerti mig djúpt.“ Silja Aðalsteinsdóttir
„Meiriháttar bók. Meistaraverk.“ Gísli Helgason
© 2021 Veröld (Hljóðbók): 9789935300898
© 2022 Veröld (Rafbók): 9789935300645
Útgáfudagur
Hljóðbók: 20 maj 2021
Rafbók: 17 februari 2022
Bækur svipaðar Snerting
- Eldarnir. Ástin og aðrar hamfarir Sigríður Hagalín Björnsdóttir
- Eyland Sigríður Hagalín Björnsdóttir
- Bréfið Kathryn Hughes
- Sjö systur Lucinda Riley
- Náðarstund Hannah Kent
- Svar við bréfi Helgu Bergsveinn Birgisson
- Húðflúrarinn í Auschwitz Heather Morris
- Vigdís - Kona verður forseti Páll Valsson
- Vertu úlfur: wargus esto Héðinn Unnsteinsson
- Bak við luktar dyr B.A. Paris
- Þegar fennir í sporin Steindór Ívarsson
- Hús tveggja fjölskyldna Lynda Cohen Loigman
- Sálarhlekkir Steindór Ívarsson
- Hvunndagshetjan Auður Haralds
- Sjö eiginmenn Evelyn Hugo Taylor Jenkins Reid
- Þessu lýkur hér Colleen Hoover
- Hugrekki til að hafa áhrif Halla Tómasdóttir
- Karitas án titils Kristín Marja Baldursdóttir
- Minningaskrínið Kathryn Hughes
- Tvísaga Ásdís Halla Bragadóttir
- Fíkn Rannveig Borg Sigurðardóttir
- Berlínaraspirnar Anne B. Ragde
- Inngangur að efnafræði Bonnie Garmus
- Aðventa Gunnar Gunnarsson
- Innflytjandinn Ólafur Jóhann Ólafsson
- Blóðsykursbyltingin Jessie Inchauspé
- Sextíu kíló af sólskini Hallgrímur Helgason
- Hvítidauði Ragnar Jónasson
- Ég fremur en þú Jojo Moyes
- Leyndarmálið Kathryn Hughes
- Morðin í Dillonshúsi Sigríður Dúa Goldsworthy
- Elspa – saga konu Guðrún Frímannsdóttir
- Stóri bróðir Skúli Sigurðsson
- Þernan Nita Prose
- Dansarinn Óskar Guðmundsson
- Þess vegna sofum við Matthew Walker
- Úr myrkrinu Ragnheiður Gestsdóttir
- Marrið í stiganum Eva Björg Ægisdóttir
- Hið heilaga orð Sigríður Hagalín Björnsdóttir
- Þernan: Undir yfirborðinu Freida McFadden
- Lykillinn Kathryn Hughes
- Hansdætur Benný Sif Ísleifsdóttir
- Aprílsólarkuldi Elísabet Jökulsdóttir
- Hudson: Yfir hafið og heim Erla Sesselja Jensdóttir
- Óstýriláta mamma mín og ég Sæunn Kjartansdóttir
- Valskan Nanna Rögnvaldardóttir
- Þögli sjúklingurinn Alex Michaelide, Alex Michaelides
- Sakramentið Ólafur Jóhann Ólafsson
- Verity Colleen Hoover
- Salka-Valka Halldór Laxness
- Yesteryear Caro Claire Burke
- Allar litlu lygarnar Eva Björg Ægisdóttir
- Sjálfstætt fólk Halldór Laxness
- Tvöfalt svikalíf unnusta míns: Hin fjölskyldan hans bjó í hálftima fjarlægð Coleen Greenwood, Karen Crear
- Harry Potter og viskusteinninn J.K. Rowling
- Blóðberg Þóra Karítas Árnadóttir
- Alfa Lilja Sigurðardóttir
- Kósýkvöld með Láru Birgitta Haukdal
- Allt minnir á þig Colleen Hoover
- Eiginkona læknisins Daniel Hurst
- Lína langsokkur Astrid Lindgren
- Heim fyrir myrkur Eva Björg Ægisdóttir
- Hleyptu honum ekki inn Lisa Jewell
Veldu áskrift
1 milljón hljóð- og rafbækur
Barnvænt viðmót með Kids Mode
Hlustaðu og lestu á sama tíma
Vistaðu bækurnar fyrir ferðalögin
Unlimited
Besti valkosturinn fyrir einn notanda
3290 kr á mánuði
1 aðgangur
Ótakmörkuð hlustun
1 milljón hljóð- og rafbækur
Engin skuldbinding
Getur sagt upp hvenær sem er
Family
Fyrir þau sem vilja deila sögum með fjölskyldu og vinum.
Frá 3990 kr á mánuði
2-6 aðgangar
100 klst/mán fyrir hvern aðgang
1 milljón hljóð- og rafbækur
Engin skuldbinding
Getur sagt upp hvenær sem er
Þú + 1 fjölskyldumeðlimur
2 aðgangar3990 kr á mánuði
