22 Umsagnir
4.32
Tungumál
Íslenska
Flokkur
Óskáldað efni
Lengd
7Klst. 37Mín

Píslarvottar nútímans

Höfundur: Magnús Þorkell Bernharðsson Lesari: Pétur Eggerz Hljóðbók

Helsta deiluefni heimsins um þessar mundir eru málefni Mið-Austurlanda og þar eru nágrannaríkin Írak og Íran í stóru hlutverki. Eftir árásirnar á Tvíburaturnana í New York árið 2001 og svo umdeilda innrás Bandaríkjamanna, Breta og bandalagsþjóða þeirra í Írak í mars 2003 má segja að nýtt skeið hefjist í samskiptum Vesturlanda og Mið-Austurlanda. Í þeim erfiðu samskiptum hefur ólík menning og trúarbrögð virst afgerandi þáttur.

Í þessari bók er fjallað um sögu stjórnmála og trúarbragða í Íran og Írak, og með því að rekja og flétta saman sögu landanna tveggja og reynslu er þess freistað að varpa ljósi á ástandið eins og það blasir við nú. Höfundur skyggnist hér að baki fyrirsagna fjölmiðlanna og margt óvænt og forvitnilegt kemur í ljós. Hann rökstyður til dæmis að trúin hafi ekki verið miðlægur þáttur í stjórnmálum þessara landa lengst af 20. öldinni, en margt bendi til að vægi hennar eigi eftir að aukast mjög á næstu árum og áratugum. Bent er á að hugmyndafræði svokallaðra íslamista sæki á og meðal annars rakið hvernig klerkaveldið í Íran vegsamaði „píslarvættisdauða“ í stríðinu við Írak og lagði þannig grunninn að sjálfsmorðsárásum íslamista. Einnig er lýst erlendum afskiptum af málefnum Íraks og Írans og hvernig sú beiska reynsla hefur mótað tortryggni íbúa Mið-Austurlanda í garð Vesturlanda.

Magnús Þorkell Bernharðsson er einn helsti sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda sem starfar í Bandaríkjunum. Hann hefur skrifað fjölda greina um þessi efni í blöð hérlendis sem erlendis og haldið vinsæl námskeið og fyrirlestra.

Píslarvottar nútímans er bók sem sætir miklum tíðindum, enda er hér skrifað af mikilli þekkingu á aðgengilegan hátt um málefni sem brenna á allri heimsbyggðinni.

© 2021 Mál og menning (Hljóðbók) ISBN: 9789979345312

Skoða meira af