90 Umsagnir
4.34
Tungumál
Íslenska
Flokkur
Ævisögur
Lengd
5Klst. 20Mín

Riddarar hringavitleysunnar

Höfundur: Ágúst Kristján Steinarsson Lesari: Stefán Benedikt Vilhelmsson Hljóðbók

Fjórir menn hittast fyrir tilviljun. Allir standa þeir á krossgötum í lífi sínu og í hönd fer tími þar sem þeir þurfa að berjast fyrir lífi sínu, heilsu og draumum.

Á undanförnum árum hefur orðið umbylting í umfjöllun um geðræn veikindi. Í stað þess að pukrast sé með andlega sjúkdóma hefur hugrakkt fólk stigið fram og lýst upplifun sinni af slíkum veikindum. Þannig hafa í senn opnast augu fólks fyrir raunverulegri stöðu þeirra sem hafa veikst, að þeir eru af öllum toga og úr öllum þjóðfélagshópum, en ekki síður að víða er pottur brotinn varðandi stuðning og aðhlynningu.

Einn af þeim sem hafa stigið fram fyrir skjöldu og tjáð sig á hreinskilinn hátt um reynslu sína af geðhvörfum er Ágúst Kristján Steinarsson. Í Riddurum hringavitleysunnar lýsir hann nánast ómennskum átökum við veikindi af jafnt líkamlegum sem andlegum toga. Þetta er bók sem virkilega hreyfir við lesandanum, fær hann til að meta sína eigin reynslu og líf upp á nýtt og opnar fyrir skilning á hlutskipti annarra.

Ágúst Kristján Steinarsson (f. 1980) er stjórnunarráðgjafi, jöklaleiðsögumaður og sögumaður. Sögur hans birtast í textum, ljóðum og lögum sem eru alla jafna byggð á persónulegri reynslu hans. Ágúst hefur trú á mátt sögunnar til að ná til fólks og þannig hreyfa við einstaklingum og samfélögum.

© 2020 Storyside (Hljóðbók) ISBN: 9789179899196

Skoða meira af