Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
„Bubbi Morthens er rétt að segja einhver frægasti maður landsins. Hann hefur verið sjálft vorið í íslenskri rokktónlist og hlotið slíkt lof að þess munu vart finnast dæmi hliðstæð”. Þetta skrifaði Gunnar Salvarsson í desember 1980, árið sem Bubbi sló svo eftirminnilega í gegn, og ekki hefur frægð hans dvínað síðan né dregið úr lofinu. Hvaðan kemur þessi maður sem svo rækilega losaði íslenska dægurtónlist úr fjötrum meðalmennskunnar? Hvernig stendur á frægð hans og hvernig hefur ferill hans verið? Og hvað finnst honum sjálfum um þetta allt saman?
Um það og ótal margt fleira geta lesendur fræðst í þessari lifandi og kraftmiklu bók þeirra Ásbjarnar og Silju. Bubbi segir frá bernsku sinni og uppvexti, misheppnaðri skólagöngu og litríkum tíma sem farandverkamaður, frá árunum í rokkinu en líka frá freistingum dópsins, sorginni og ástinni. Um leið lýsir bókin merkilegum þætti íslenskrar menningar, og skýrir kannski af hverju svo ótal margir, ungir sem aldnir, hafa hrifist af tónlist og textum Bubba undanfarinn áratug.
© 2023 Mál og menning (Hljóðbók): 9789979344247
Útgáfudagur
Hljóðbók: 30 oktober 2023
Íslenska
Ísland