650 Umsagnir
4.13
Tungumál
Íslenska
Flokkur
Skáldsögur
Lengd
7Klst. 53Mín

Sakramentið

Höfundur: Ólafur Jóhann Ólafsson Lesari: Þorvaldur Davíð Kristjánsson Hljóðbók og Rafbók

Nemandi í Landakotsskóla verður vitni að því þegar séra Ágúst Frans skólastjóri hrapar niður úr turninum á Kristskirkju. Tveimur áratugum síðar vill drengurinn hitta nunnuna sem í aðdraganda þessa atburðar var fengin til að rannsaka framkomu skólastjórans við nemendur. Kynni hennar af Íslandi og Íslendingum umturnuðu lífi hennar og hún er enn með hugann við snjóinn í kringum svarta kirkjuna og skólahúsið hjá kirkjunni og líkið í snjónum. Sakramentið er stórbrotin skáldsaga um sekt og sakleysi, ást og eftirsjá, yfirhylmingu og leynd, vald – og okkar minnstu bræður. Hér sýnir Ólafur Jóhann Ólafsson allar sínar bestu hliðar: sagan heldur lesandanum föngnum, persónurnar eru ljóslifandi og efnið áhrifamikið. Hann hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir bækur sínar, bæði heima og erlendis, meðal annars Íslensku bókmenntaverðlaunin og O. Henry verðlaunin í Bandaríkjunum.

© 2017 Skynjun (Hljóðbók) ISBN: 9789935181794 © 2022 Veröld (Rafbók) ISBN: 9789935475961

Skoða meira af