
Tengdadóttirin I - Á krossgötum
- Höfundur:
- Guðrún frá Lundi
- Lesari:
- Silja Aðalsteinsdóttir
Hljóðbók og Rafbók
Hljóðbók: 23. júní 2021
Rafbók: 23. júní 2021
- 733 Umsagnir
- 4.34
- Seríur
- Hluti 1 af 3
- Tungumál
- Íslenska
- Flokkur
- Rómantík
- Lengd
- 16Klst. 49Mín
Tengdadóttirin I - Á krossgötum
Höfundur: Guðrún frá Lundi Lesari: Silja Aðalsteinsdóttir Hljóðbók og RafbókÞorgeir Þorgeirsson, ungur sjómaður að sunnan, ræður sig sem vinnumann á prestssetur í blómlegri norðlenskri sveit. Hann hrífst af fallegustu vinnukonunni á bænum en hikar við að bindast henni af því að hann hræðist líf í fátækt. Á heimleið um haustið leysir hann af slasaðan vinnumann á stórbýlinu Hraunhömrum. Bóndinn þar á tvær dætur og sú eldri, Ástríður, er harðákveðin í að sleppa Þorgeiri ekki aftur suður. Þótt Ástríður sé röggsöm og forkur til vinnu er hún ekki heillandi kona – en auður föður hennar freistar.
Í Tengdadótturinni, sem kom fyrst út 1952–54 í þremur bindum og átti miklum vinsældum að fagna, segir frá ástum og örlögum jafnt sem daglegu lífi til sveita í byrjun 20. aldar. Guðrún frá Lundi hefur einstakt lag á að gæða persónur sínar lífi svo að lesandinn hverfur um hundrað ár aftur í tímann. Á krossgötum er fyrsta bókin í þessum magnaða flokki, nú í dásamlegum lestri Silju Aðalsteinsdóttur.
Skoða meira af


Hlustaðu og lestu ókeypis í 3 daga
Njóttu þess að hlusta ótakmarkað á bókasafnið okkar í 3 daga, þér að kostnaðarlausu.