Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
4.7
2 of 2
Barnabækur
Ævintýralegt tröllarokk fyrir alla fjölskylduna!
Jonni neyðist til að fara með pabba sínum á fund á gömlum sveitabæ þvert gegn vilja sínum. Á meðan Jonni bíður eftir að fundurinn klárist ráfar hann upp í fjallið Tröllahyrnu fyrir ofan bæinn og festist í gjótu. Jonna líst ekki á blikuna, síminn virkar ekki svona hátt uppi á fjalli og enginn veit af hvar hann er niðurkominn. Sem betur fer kemur Tóta honum til bjargar úr gjótunni en hún reynist vera tröllastelpa sem býr í Tröllabyggð ásamt öllum hinum tröllunum.
Tröllin reynast vera í hinum mestu vandræðum því illmennið Seðill hefur stolið af þeim uppdrætti sem sýnir leiðina að lífsnauðsynlegum plöntum sem geta bjargað lífi steinrunninna trölla. Jonni og Tóta leggja upp í mikla hættuför til þess að ná aftur í uppdráttinn og lenda í miklum ævintýrum á leiðinni. Tekst þeim að sigrast á Seðli og ná uppdrættinum í tæka tíð fyrir Skessunótt?
Guðmundur Ólafsson skrifaði Trölladans. Hann hefur skrifað barna- og unglingabækur, leikrit og sjónvarpsefni fyrir börn. Guðmundur hefur hlotið Íslensku barnabókaverðlaunin tvisvar sinnum. Friðrik Sturluson er meðhöfundur verksins og samdi auk þess tónlistina og sá um upptökustjórn, útsetningar og tónlistarstjórn ásamt Kristni Sigurpáli Sturlusyni.
© 2022 Storytel Original (Hljóðbók): 9789180357814
Útgáfudagur
Hljóðbók: 9 juni 2022
Íslenska
Ísland