72 Umsagnir
4.15
Tungumál
Íslenska
Flokkur
Skáldsögur
Lengd
13Klst. 20Mín

Saga býflugnanna

Höfundur: Maja Lunde Lesari: Ólafur Ásgeirsson, Valgerður Sigurðardóttir, Arnljótur Sigurðsson Hljóðbók og Rafbók

England 1852: William rífur sig upp úr þunglyndi til að hanna býflugnabú sem halda á nafni ættarinnar á lofti um ókomna tíð. Bandaríkin 2007: George stritar við býflugnaræktina og reynir að hundsa ógnvekjandi fréttir frá starfssystkinum sínum sunnar í landinu.
Kína 2098: Tao vinnur við að handfrjóvga ávaxtatré en dreymir um betra líf fyrir son sinn. Svo verður óhappið …
Í Sögu býflugnanna fléttast þrír grípandi þræðir saman í þétta frásögn sem snýst í senn um margslungin sambönd fólks og samspil manns og náttúru.
Maja Lunde hefur skrifað metsölubækur fyrir börn og fullorðna.
Saga býflugnanna sló í gegn um allan heim og hefur hlotið fjölda viðurkenninga, þar á meðal Norsku bóksalaverðlaunin.

© 2022 MM (Hljóðbók) ISBN: 9789979347309 © 2022 MM (Rafbók) ISBN: 9789979342564 Þýðandi: Ingunn Ásdísardóttir

Skoða meira af