200 Umsagnir
3.93
Tungumál
Íslenska
Flokkur
Ævisögur
Lengd
3Klst. 49Mín

Bókasafn föður míns

Höfundur: Ragnar Helgi Ólafsson Lesari: Þorleifur Hauksson, Ragnar Helgi Ólafsson Hljóðbók og Rafbók

Að föður sínum látnum þarf Ragnar Helgi að fara í gegnum 4000 titla bókasafn föður síns og finna því stað á 21. öldinni. Þótt hann einsetji sér í upphafi að opna ekki bækurnar og alls ekki fara að grúska, fær hann ekki við það ráðið.

Við starfann kvikna minningar, hugleiðingar um bækur, menninguna, missi, fallvelti hluta, um liðna tíð og framtíðina – en ekki síður um samband föður og sonar og hvað skipti mestu máli í lífinu þegar upp er staðið.

Bókasafn föður míns er falleg, fyndin, tregafull og íhugul frásögn um verðmætamat og tilfinningalíf sem í krafti stílgaldurs og einlægni hefur djúp áhrif á lesandann. Síðasta bók Ragnars Helga, Handbók um minni og gleymsku, vakti mikla athygli og var tilnefnd til bæði Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Menningarverðlauna DV.

© 2019 Storyside (Hljóðbók) ISBN: 9789179232757 © 2022 Bjartur (Rafbók) ISBN: 9789935500335

Skoða meira af