
Leikur engilsins
- Höfundur:
- Carlos Ruiz Zafon
- Lesari:
- Ólafur Egill Egilsson
Hljóðbók
Hljóðbók: 14. september 2022
- 90 Umsagnir
- 4.2
- Seríur
- Hluti 2 af 3
- Tungumál
- Íslenska
- Flokkur
- Skáldsögur
- Lengd
- 16Klst. 6Mín
David er lægst settur allra blaðamannanna á dagblaðinu La Voz de la Industria í Barcelona árið 1917. En kvöld eitt fær hann óvænt tækifæri og semur smásögu fyrir helgarblaðið sem slær í gegn. Hann er orðinn þekktur fyrir bókaflokk um leyndardóma borgarinnar þegar dularfullur franskur útgefandi hefur samband við hann og vill panta hjá honum ritverk. En útgefandinn er ekki allur þar sem hann er séður og brátt er David í miklum vanda staddur.
Leikur engilsins er saga um bækur, ófyrirsjáanleg áhrif þeirra og anda, eins og fyrri skáldsaga Zafóns, Skuggi vindsins, sem sigraði heiminn fyrir fáum árum. Ógleymanleg saga um yfirnáttúrulega atburði, hamslausar ástríður, hús í álögum, öngstræti og myrka króka og kima hinnar fögru Barcelonaborgar.
Skáldsagan Skuggi vindsins eftir Carlos Ruiz Zafón fór sigurför um heiminn en Leikur engilsins gefur henni ekkert eftir. Bækur Zafón hafa verið þýddar á yfir fjörutíu tungumál, hlotið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar og sigrað hugi milljóna lesenda. Hér birtist hún í þýðingu Sigrúnar Á. Eiríksdóttur og í dásamlegum lestri Ólafs Egils Ólafssonar.
Skoða meira af


Hlustaðu og lestu ókeypis í 3 daga
Njóttu þess að hlusta ótakmarkað á bókasafnið okkar í 3 daga, þér að kostnaðarlausu.