Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
4.3
Skáldsögur
Á aðfangadag árið 1617 skellur aftakaveður fyrirvaralaust á Vardø, austustu byggð Norður-Noregs, þegar nær allir karlmenn þorpsins eru á sjó. Maren, Kirsten og Diinna standa með öðrum konum á ströndinni og horfa á eiginmenn, unnusta, feður, bræður og syni farast. Þær eru einar eftir og þurfa að bjarga sér sem best þær geta. Sumar halda dauðahaldi í trúna, aðrar treysta meira á eigin mátt.
Hálfu öðru ári síðar kemur nýr fógeti til Vardø í þeim tilgangi að sveigja íbúana undir veraldlegt og andlegt yfirvald og uppræta galdrakukl Samanna. Unga konan hans er með í för og þegar hún kynnist Marenu og Kirsten áttar hún sig á að til eru sjálfstæðar konur. En eiginmaður hennar sér ekkert annað en sótsvarta skugga og fordæðuskap sem hann verður að útrýma með öllum ráðum.
Kiran Millwood Hargrave er margverðlaunaður höfundur sem hefur áður sent frá sér ljóð, leikrit og barnabækur en Bálviðri er fyrsta skáldsaga hennar fyrir fullorðna og byggist á frásögnum af raunverulegu galdrafári í Norður- Noregi.
© 2021 Mál og menning (Hljóðbók): 9789979344797
© 2021 Mál og menning (Rafbók): 9789979342977
Þýðandi: Eyrún Edda Hjörleifsdóttir
Útgáfudagur
Hljóðbók: 7 juli 2021
Rafbók: 7 juli 2021
Merki

Íslenska
Ísland