1375 Umsagnir
4.3
Seríur
Hluti 7 af 8
Tungumál
Íslenska
Flokkur
Spennusögur
Lengd
11Klst. 28Mín

Dauðabókin

Höfundur: Stefan Mani Lesari: Rúnar Freyr Gíslason Hljóðbók og Rafbók

Stúlka á unglingsaldri deyr vegna ofneyslu eiturlyfja í sumarpartíi í Borgarnesi. Enginn er handtekinn vegna málsins.

Um haustið er piltur myrtur við Rauðhóla. Skömmu síðar fá vinir hins myrta torkennilegar vinabeiðnir á samfélagsmiðlum sem leiða þá að síðu sem kallast DAUÐABÓKIN. Hver stendur að baki síðunni og hvað vill DAUÐABÓKIN unga fólkinu?

Hörður Grímsson rannsakar málið, sem verður sífellt flóknara. Þegar annað ungmenni liggur í valnum er samfélagið í áfalli en Hörð grunar að vinir hinna látnu segi ekki allan sannleikann. Eiga þeir leyndarmál sem ekki þola dagsljósið?

Hörður Grímsson hefur unnið sér sess sem ein allra vinsælasta söguhetja íslenskra spennusagna. DAUÐABÓKIN er áttunda bók Stefáns Mána um þennan sérstæða lögreglumann.

© 2020 Sögur útgáfa (Hljóðbók) ISBN: 9789935498861 © 2020 Sögur útgáfa (Rafbók) ISBN: 9789935310026

Skoða meira af