Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
3
1 of 1
Spennusögur
Lík af konu að nafni Linda finnst um sumar í sænskum smábæ. Rannsóknarlögreglumaðurinn brokkgengi Evert Bäckström stýrir rannsókninni. Hann kemst fljótlega á snoðir um flókinn vef lyga, leyndarmála og hagsmunatengsla meðal bæjarbúa. Með snjöllum og fyndnum hætti fléttar Persson saman marga söguþræði í þessari vel skrifuðu og spennandi bók. Hann veitir innsýn í hvatir hinna grunuðu og varpar ljósi á áleitin þjóðfélagsmál, svo sem stéttaskiptingu, spillingu, pólitísk áhrif og galla réttarkerfisins. Jafnframt dregur hann fram margbreytileika lögreglustarfsins og þær áskoranir sem rannsóknarlögreglumenn standa frammi fyrir. Hvernig verður réttlætinu best fullnægt? Linda – eða Lindumorðið er ein frægasta bók sænska verðlaunahöfundarins Leifs GW Persson. Hún hefur verið þýdd á yfir 30 tungumál og hvarvetna hlotið frábærar viðtökur. Hún er fyrsta bókin í seríunni um Evart Bäckström.
© 2023 Ugla útgáfa (Hljóðbók): 9789935218681
Þýðandi: Jakob S. Jónsson
Útgáfudagur
Hljóðbók: 4 september 2023

Heildareinkunn af 139 stjörnugjöfum
Leiðinleg
Flókin
Spennandi
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 10 af 139
Erla
11 sep. 2023
Bókin er full af fordómum og illri orðræðu í garð kvenna, litaðra, samkynhneigðra og samstarfsmanna! Legg til að Storytel fjarlægi hana af Storytel, og birti ekki fleiri bækur í þessum bókaflokki! Kristján sem er einn af mínum uppáhalds lesurum vona èg að lesi ekki fleiri bækur um þennan rannsóknarlögreglumann!
Ragna
16 sep. 2023
Langdregin
Hjördís
3 apr. 2024
Ömurlega léleg óspennusaga. Algjört karlrembukjaftæði.
Þorbjörg
16 sep. 2023
Langdregin og leiðinleg🙁
Sigrún
9 okt. 2023
Mjög léleg og leiðinleg bók. Kvenfyrirlitning og ljótt orðbragð. Kristján Franklin allt of góður lesari fyrir svona rusl. Ég reyndi að klára bókina og var farin að fara á milli kafla í von um einhvern góðan endi en það brast.
Sigríður
14 sep. 2023
Ekkert sérstaklega spennandi og algjör tímaeyðsla ef ekki væri fyrir góðan lestur og svo aðalsögupersónuna sem er svo hræðilegur að ég skellti oft upp úr.
Guðrún Pálína
29 okt. 2023
Gafst upp eftir 9 tíma hlustun. Sama blaðrið og ekkert að gerast í sögunni. Í fyrsta sinn sem ég klára ekki bók.Miklir fordómar í garð kvenna, litaðra manneskja og samkynhneigðra.
Stefanía
11 sep. 2023
Leiðinleg, langdregin og fáránlega illa farið í gegnum máli sem gerir mann vissan um að rangur maður hafi verið handtekinn og dæmdur. (Er samt ekki lögga) Frábær lestur. Sé fyrir mér leikarann sem leikur í myndunum um aðal söguhetjuna og það hjálpaði aðeins.😟
Anna Lísa
7 okt. 2023
Ég gafst upp á henni og það gerist ekki oft en lesarinn góður
Elín Ýrr
30 okt. 2023
Frábær bók og fullkominn lestur. Bókin er full af humor og er ádeila á mismiklar karlrembur
Íslenska
Ísland