255 Umsagnir
4.58
Tungumál
Íslenska
Flokkur
Óskáldað efni
Lengd
14Klst. 48Mín

Þess vegna sofum við

Höfundur: Matthew Walker Lesari: Arnar Jónsson Hljóðbók

Þessi bók er tímamótaverk sem slegið hefur í gegn um allan heim. Hér eru kannaðir innstu leyndardómar svefnsins og útskýrt hvernig við getum virkjað endurnýjunarmátt hans til að breyta lífi okkar til hins betra. Svefn hefur ávallt verið einn mikilvægasti þátturinn í lífi okkar, heilsu og langlífi en jafnframt sá sem við vissum einna minnst um, allt þar til vísindalegar uppgötvanir byrjuðu að varpa ljósi á hann fyrir tveimur áratugum. Hinn virti taugavísindamaður og svefnsérfræðingur, Matthew Walker, sýnir okkur nú á eftirminnilegan hátt hve lífsnauðsynlegur svefn er og hvernig hann styrkir hæfileika okkar til að læra og taka ákvarðanir, endurkvarðar tilfinningar, eflir ónæmiskerfið, stillir matarlystina og ýmislegt fleira. Þess vegna sofum við er snilldarleg, hrífandi, áreiðanleg og afskaplega aðgengileg bók sem kennir lesandanum að skilja og meta svefn og drauma á alveg nýjan hátt. Dr. Matthew Walker er prófessor í taugavísindum og sálfræði við Kaliforníuháskóla í Berkeley, forstjóri Svefnrannsóknarstöðvarinnar þar og fyrrverandi prófessor í geðsjúkdómafræði við Harvard háskóla. Arnar Jónsson leikari sem les.

© 2021 Bókafélagið (Hljóðbók) ISBN: 9789935517296 Titill á frummáli: Why We Sleep Þýðandi: Herdís M. Hubner

Skoða meira af