62 Umsagnir
3.19
Tungumál
Íslenska
Flokkur
Skáldsögur
Lengd
7Klst. 59Mín

Allt með kossi vekur

Höfundur: Guðrún Eva Mínervudóttir Lesari: Stefán Benedikt Vilhelmsson Hljóðbók

Þegar Davíð fær send eftirlátin gögn Láka, sambýlismanns Elísabetar móður hans, vaknar hjá honum óslökkvandi löngun til þess að komast til botns í því sem gerðist haustið 2003. Hver var þáttur móður hans í örlögum vina hennar, Indi og Jóns? Hafði Elísabet eyðileggjandi áhrif á alla í kringum sig? Kallaði Kötlugosið fram illskuna í fólki? Bjó hinn eini sanni koss yfir óskilgreindum ógnarkrafti?

Leit Davíðs að sannleikanum verður að ferðalagi inn í innstu sálarmyrkur og knýr hann að lokum til að takast á við erfiðar spurningar um tilvist sína.

Allt með kossi vekur er kraftmikil og hugmyndarík saga sem sver sig í ætt við fyrri bækur Guðrúnar Evu Mínervudóttur, þar sem frásögnin dansar á mörkum raunsæis og fantasíu. Guðrún Eva hlaut fyrir hana Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2011. Stefán Benedikt Vilhelmsson les.

© 2020 Storyside (Hljóðbók) ISBN: 9789180120012

Skoða meira af