Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
3.7
Ungmennabækur
Árið er 1976 og Sveinn Ólafsson vaknar að morgni þrettánda afmælisdagsins. Í veröld hans eru engir snjallsímar, tölvur og internet en litasjónvarpið er stórkostleg tækninýung. Svo hvað getur hann gert þegar hann áttar sig á að hann er ástfanginn af Klöru? Hvernig bregst hann við þegar hann sér að hann er að fá hár á undarlegum stöðum? Eða þegar hann fréttir að kærasta pabba hans á von á barni, eða þegar sautján ára frænka hans ryðst inn á heimilið og sest að í herberginu sem er inn af hans eigin herbergi? Hvað gerir hann þegar honum finnst allir í kringum sig leggjast á eitt um að gera honum lífið leitt og tilveruna óbærilega?
Að vera þrettán ára er lífshættulegt ástand og kannski það versta sem hægt er að lenda í – en um leið alveg einstök og ógleymanleg reynsla.
Þrettán er endurskoðuð útgáfa á skáldsögunni Góða ferð, Sveinn Ólafsson sem kom út árið 1998 og hlaut mikið lof. Bókin hefur komið út bæði vestan hafs og austan og fengið sérlega góðar viðtökur. Sagan birtist hér í frábærum lestri Arnmundar Ernst Backman.
© 2022 Bjartur (Hljóðbók): 9789935301833
© 2022 Veröld (Rafbók): 9789935495983
Útgáfudagur
Hljóðbók: 13 januari 2022
Rafbók: 17 februari 2022
Íslenska
Ísland