
Halldór Laxness - Ævisaga
- Höfundur:
- Halldór Guðmundsson
- Lesari:
- Halldór Guðmundsson
Hljóðbók og Rafbók
Hljóðbók: 12. maí 2021
Rafbók: 12. maí 2021
- 118 Umsagnir
- 4.59
- Tungumál
- Íslenska
- Flokkur
- Ævisögur
- Lengd
- 33Klst. 19Mín
Halldór Laxness - Ævisaga
Höfundur: Halldór Guðmundsson Lesari: Halldór Guðmundsson Hljóðbók og RafbókHalldór Laxness var síðasta þjóðskáld Evrópu. Hann var ekki þjóðskáld af því að öll íslenska þjóðin elskaði hann eða fyndist jafn mikið til um allt sem hann sendi frá sér. Því fór fjarri. Hann var þjóðskáld af því næstum öll þjóðin lét sig varða hvað hann skrifaði.
Verkum hans var oft fagnað og margir reiddust þeim – en engum var sama. Hann speglaði í lífi sínu og bókum þá öld sem hann lifði og lifði sig inn í, öld öfganna. Þannig var hann sjálfur: Oft einstaklega alúðlegur og háttvís í framkomu en um leið ótrúlega djarfur og hvassyrtur penni. Þeir voru ólíkir í honum, skáldið og maðurinn, því hann var maður andstæðna, Íslendingur og heimsborgari, fagurkeri og baráttumaður. Hann var stór í hugsjónum sínum og verkum – og mistökum. Metnaður hans var mikill og stundum tillitslaus. En skáldverk sín samdi hann af innri þörf og ekki til að þóknast neinum.
Halldór Guðmundsson hefur talað við fjölda manns, leitað í bókum, skjala- og bréfasöfnum, hér á landi og erlendis, að heimildum og vitnisburði um viðburðaríkt og þverstæðukennt líf Halldórs Laxness. Myndin sem hann dregur upp af viðfangsefni sínu er fræðandi og skemmtileg en umfram allt ögrandi og óvænt.
Íslensk þjóð lét sig frá upphafi varða gerðir og skrif síns mesta rithöfundar. Í þessari bók fær hún loksins að kynnast manninum sjálfum.
Halldór Guðmundsson hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bókina árið 2004.
Skoða meira af
- Fyrir fullorðna
- 19. öldin
- 20. öldin
- Reykjavík
- Landsbyggðin
- Stórborg
- Höfundar lesa
- Ævisögur um rithöfunda
- Ævisögur fólks sem naut velgengnis
- Ísland
- Dramatískt
- Afslappað
- Einmanaleiki
- Fangandi fortíð
- Hamingja
- Innblástur
- Lærdómsríkt
- Skemmtilegt
- Sorglegt
- Sögur af velgengni
- Sögur um sambönd
- Verðlaunabækur
- Listaheimurinn
- Borgarlífið
- Hollywood
- Hótel
- Hversdagslíf
- Völundarhús valdsins
- Að eldast
- Stjórnmál
- Vinátta
- Starfsframi
- Sköpunargleði
- Upplýsandi


Hlustaðu og lestu ókeypis í 3 daga
Njóttu þess að hlusta ótakmarkað á bókasafnið okkar í 3 daga, þér að kostnaðarlausu.