2028 Umsagnir
4.19
Seríur
Hluti 2 af 3
Tungumál
Íslenska
Flokkur
Glæpasögur
Lengd
10Klst. 12Mín

Stelpur sem ljúga

Höfundur: Eva Björg Aegisdottir Lesari: Þórdís Björk Þorfinnsdóttir Hljóðbók og Rafbók

Einstæð móðir hverfur af heimili sínu en skilur eftir miða með skilaboðum á eldhúsborðinu. Í fyrstu er talið að hún hafi fyrirfarið sér en þegar illa farið lík finnst í Grábrókarhrauni sjö mánuðum síðar standa lögreglukonan Elma og samstarfsmenn hennar frammi fyrir flókinni morðgátu. Fimmtán árum fyrr liggur nýbökuð móðir á fæðingardeild og hefur óbeit á barninu sem liggur við hlið hennar.

Stelpur sem ljúga er grípandi og mögnuð spennusaga um það hvernig brotin æska og áföll geta leitt til skelfilegra atburða síðar á lífsleiðinni. Eva Björg Ægisdóttir hlaut fyrst allra glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn fyrir frumraun sína Marrið í stiganum. Bókin fékk mikið lof, sat vikum saman í efstu sætum á metsölulistum og hlaut einnig Storytel Awards hljóðbókaverðlaunin sem besta hljóðbókin í flokki glæpasagna. Stelpur sem ljúga sýnir glöggt að Eva Björg er á meðal okkar fremstu glæpasagnahöfunda.

© 2020 Veröld (Hljóðbók) ISBN: 9789935300591 © 2022 Veröld (Rafbók) ISBN: 9789935495945 Titill á frummáli: Stelpur sem ljúga

Skoða meira af