41 Umsagnir
3.41
Tungumál
Íslenska
Flokkur
Skáldsögur
Lengd
12Klst. 8Mín

Örninn og Fálkinn

Höfundur: Valur Gunnarsson Lesari: Hinrik Ólafsson Hljóðbók og Rafbók

Örninn og Fálkinn er æsispennandi skáldverk um veruleika sem hefði getað orðið ef herlið Hitlers hefði komið á undan Bretum til Íslands. Stríðið í Evrópu ratar til Íslands þegar nasistar ganga á land í Reykjavík vorið 1940. Sigurður Jónasson, ungur starfsmaður hjá Landsímanum, fylgist með hvernig fólk aðlagast hinu nýja Hitlers-Íslandi, margir græða og þjóðernissinnar sækja í sig veðrið. En þegar slettist upp á vinskap Hitlers og Stalíns í austri fer vísir að íslenskri andspyrnuhreyfingu að verða til. Hvað er það sem nasistar eru í raun að vilja á Íslandi? Og hvað eru þeirra helstu vísindamenn að gera á hálendinu? Sigurður og félagar hans halda í hættuför þar sem markmiðið er að koma í veg fyrir það sem virðist vera óhjákvæmilegur sigur Þjóðverja í stríðinu. Örninn og Fálkinn er þriðja skáldsaga Vals Gunnarssonar.

© 2021 Mál og menning (Hljóðbók) ISBN: 9789979346128 © 2021 Mál og menning (Rafbók) ISBN: 9789979339151

Skoða meira af