81 Umsagnir
3
Tungumál
Íslenska
Flokkur
Skáldsögur
Lengd
2Klst. 44Mín

Villisumar

Höfundur: Guðmundur Óskarsson Lesari: Hjörtur Jóhann Jónsson Hljóðbók og Rafbók

„Pabbi sneri aftur á öðrum degi. Hann var með fingur í eyra vínkúts, sveiflaði honum lítillega og flautaði lag til að undirstrika að hann viðurkenndi ekki nærveru mína.“

Bókin segir frá unglingspilti sem dvelur eitt sumar með föður sínum, þekktum listmálara og erfiðum í umgengni, í suðrænni borg. Dvölin verður afdrifarík fyrir þá báða. Áratugum síðar snýr sonurinn aftur í fylgd uppkominna barna sinna og rifjar upp þetta einkennilega sumar á framandi stað, undir brennandi sól. Sumarið þegar leiðir skildi.

Villisumar er snörp og heillandi saga og hér sýnir Guðmundur svo ekki verður um villst að hann hefur frábært vald á skáldskap, stíllinn er myndrænn og meitlaður og frásögnin listilega fléttuð. Hér í dásamlegum lestri Hjartar Jóhanns Jónssonar.

© 2021 JPV (Hljóðbók) ISBN: 9789935291820 © 2021 JPV (Rafbók) ISBN: 9789935116925

Skoða meira af