279 Umsagnir
4.5
Seríur
Hluti 1 af 3
Tungumál
Íslenska
Flokkur
Skáldsögur
Lengd
17Klst. 41Mín

Skuggi vindsins

Höfundur: Carlos Ruiz Zafon Lesari: Ólafur Egill Egilsson Hljóðbók

Daníel Sempere elst upp hjá föður sínum, fornbókasala í Barcelona, og fær ungur að kynnast völundarhúsi sem fáir þekkja og geymir gleymdar bækur. Skuggi vindsins er stórkostleg spennusaga um fólk á flótta, um ofsóknir, vináttu og svik, ást og hatur. Ógnvænlegir atburðir, gáskafullar persónur, dimm húsasund og háar bókahillur - allt setur þetta sterkan svip á þessa mögnuðu og heillandi sögu sem gerist í Barcelona á valdaskeiði Francos. Margföld metsölu- og verðlaunabók um alla Evrópu. Nú í frábærum lestri Ólafs Egils Ólafssonar.

© 2022 Mál og menning (Hljóðbók) ISBN: 9789979346203 Titill á frummáli: La sombra del viento Þýðandi: Tómas R. Einarsson

Skoða meira af