1319 Umsagnir
4.14
Seríur
Hluti 4 af 6
Tungumál
Íslenska
Flokkur
Glæpasögur
Lengd
9Klst. 3Mín

Refurinn

Höfundur: Sólveig Pálsdóttir Lesari: Sólveig Pálsdóttir Hljóðbók

„Hún sá ekkert nema hvítt fjúk koma æðandi úr sortanum og augnablik hvarflaði að henni að gefast upp, fara út í storminn og láta snjóinn breiða hvíta sæng sína yfir sig. Líða inn í meðvitundarleysi áður en þau næðu henni.“

Guðgeir starfar tímabundið sem öryggisvörður á Höfn í Hornafirði á meðan hann jafnar sig á áföllum í starfi og einkalífi. Líf hans hefur tekið algjörum stakkaskiptum á stuttum tíma. Áður var hann hamingjusamlega giftur fjölskyldufaðir og farsæll yfirmaður í rannsóknarlögreglunni en nú reynir hann að láta dagana líða hjá og láta lítið á sér bera.

Forvitni Guðgeirs er vakin og hann dregst inn í óvænta atburðarás þegar ung erlend kona hverfur sporlaust. Það er engu líkara en að hún hafi aldrei verið til.

Inni í Lóni býr kona með fullorðnum syni sínum. Hvaða óhugnaður býr í einangruninni?

Refurinn er fjórða glæpasaga Sólveigar Pálsdóttur. Fyrri bækur hennar hafa fengið lofsamlega dóma og tvær þeirra hafa verið gefnar út í Þýskalandi.

© 2018 Storyside (Hljóðbók) ISBN: 9789935181855

Skoða meira af