
Allt í himnalagi hjá Eleanor Oliphant
- Höfundur:
- Gail Honeyman
- Lesari:
- Maríanna Clara Lúthersdóttir
Hljóðbók
Hljóðbók: 19. nóvember 2021
- 370 Umsagnir
- 4.38
- Tungumál
- Íslenska
- Flokkur
- Skáldsögur
- Lengd
- 10Klst. 48Mín
Allt í himnalagi hjá Eleanor Oliphant
Höfundur: Gail Honeyman Lesari: Maríanna Clara Lúthersdóttir HljóðbókEleanor Oliphant lifir einföldu lífi: Hún fer í vinnuna, alltaf eins klædd, borðar alltaf sama hádegismatinn, kaupir tvær vodkaflöskur fyrir hverja helgi og drekkur þær. Samstarfsfólkið telur hana stórskrítna en það er allt í himnalagi hjá henni, hún er ánægð með lífið og saknar einskis. Eða alls.
Eitthvað hefur komið fyrir hana, eitthvað sem skýrir hegðun hennar, örin í andliti hennar, múrana sem hún hefur reist í kringum sig. En hvað er það? Og svo gerist atvik sem brýtur upp hversdagsleikann, neyðir hana til að horfast í augu við allt sem hún hefur afneitað – og færir henni ný tengsl við lífið.
Gail Honeyman er skoskur rithöfundur sem stundaði háskólanám í Glasgow og Oxford. Allt í himnalagi hjá Eleanor Oliphant er fyrsta skáldsaga hennar og var tilnefnd til virtra bókmenntaverðlauna og seld til fjölmargra landa áður en hún kom út. Ólöf Pétursdóttir þýddi. Hér í dásamlegum lestri Maríönnu Clöru Lúthersdóttur.
Skoða meira af


Hlustaðu og lestu ókeypis í 3 daga
Njóttu þess að hlusta ótakmarkað á bókasafnið okkar í 3 daga, þér að kostnaðarlausu.