
Búrið
- Höfundur:
- Lilja Sigurðardóttir
- Lesari:
- Elín Gunnarsdóttir
Hljóðbók
Hljóðbók: 6. október 2019
- 1033 Umsagnir
- 4.01
- Seríur
- Hluti 3 af 3
- Tungumál
- Íslenska
- Flokkur
- Spennusögur
- Lengd
- 8Klst. 21Mín
Agla afplánar dóm í fangelsinu á Hólmsheiði. Ekkert bíður hennar utan múranna og Sonja ástkona hennar er horfin á braut. Agla er því fljót að grípa tækifærið þegar fulltrúi erlends stórfyrirtækis biður hana um aðstoð í máli sem ekki má fara hátt. Það snýst um flókið fjármálamisferli og þar er hún á heimavelli. Með aðstoð Maríu, sjálfstætt starfandi blaðamanns, ræðst Agla til atlögu við hákarlana.
Álkóngurinn Ingimar á sér einskis ills von en þegar María fer að spyrja óþægilegra spurninga bregst hann snarlega við – og það er leikur kattarins að músinni. Í kjallaranum heima hjá honum liggja hins vegar dýnamítstangir sem hann veit ekki af og bíða réttu stundarinnar …
Búrið er æsispennandi lokaþáttur í þríleik Lilju Sigurðardóttur um eiturlyfjasmygl, efnahagsglæpi og eldheita ást í Reykjavík samtímans. Fyrri bækurnar, Gildran og Netið, hlutu frábærar viðtökur. Búrið gefur þeim ekkert eftir.
Skoða meira af


Hlustaðu og lestu ókeypis í 3 daga
Njóttu þess að hlusta ótakmarkað á bókasafnið okkar í 3 daga, þér að kostnaðarlausu.