286 Umsagnir
4.22
Tungumál
Íslenska
Flokkur
Skáldsögur
Lengd
8Klst. 16Mín

Dimmuborgir

Höfundur: Óttar Norðfjörð Lesari: Hjálmar Hjálmarsson Hljóðbók

Bókmenntarýnirinn Elmar Arnarsson er búinn að loka sig af með kettinum sínum, stafla af jólabókum og kaffi í lítravís þegar honum berast óvænt nýjar upplýsingar um andlát besta vinar síns 25 árum fyrr. Elmar hefur alla tíð verið sannfærður um að Felix hafi verið myrtur og nú verður hann heltekinn af því að komast að sannleikanum. En leitin að honum á eftir að snúa tilveru þessa hlédræga manns gjörsamlega á hvolf. Skáldsögur Óttars Norðfjörð hafa komið út víða erlendis og hlotið góðar viðtökur. Óttar skrifar auk þess sjónvarps- og kvikmyndahandrit, og er aðalhöfundur Brots, fyrstu íslensku sjónvarpsþáttaraðarinnar sem framleidd er af Netflix og sýnd um allan heim. Dimmuborgir er tíunda skáldsaga hans.

© 2020 Forlagið (Hljóðbók) ISBN: 9789979225973

Skoða meira af